Bílstjóri með réttindi til að stjórna bifreið í C1-, C-, D1- og D-flokki í atvinnuskyni er yfirleitt meira í umferðinni en hinn almenni ökumaður og má því ætla að hann komi oftar að vettvangi umferðarslyss. Aðrir vegfarendur ætlast að auki oft til þess að þeir taki að sér stjórn aðgerða á vettvangi slyss. Ennfremur má gera ráð fyrir að bílstjóri sem starfar við farþegaflutninga í atvinnuskyni geti verið fjarri byggð með farþega þegar slys verður. Mikilvægt er að hann þekki skipulag, boðleiðir og störf björgunar- og viðbragðsaðila og geti undirbúið aðkomu þeirra á vettvangi. Farið er yfir helstu þætti sem auka öryggi í umferðinni, bæði er varða umhverfi og bíltækni. Kynnt er hugmyndafræði svokallaðrar „núllsýnar“ í umferðaröryggisstarfi og helstu tegundir vinnuslysa og umferðarslysa skoðaðar.
Forkröfur náms: Ætlað atvinnubílstjórum sem hafa fengið réttindi sín fyrir 10. september 2013. Einnig þeim sem vilja endurnýja ökuskírteinið sitt með ökuréttindaflokki D1 og D til farþegaflutninga í atvinnuskyni og í flokki C1 og C til vöruflutninga í atvinnuskyni.
Athugið að nauðsynlegt er að skrá sig hér á síðunni. Þeir sem ekki eru skráðir þurfa mögulega frá að hverfa.
Verð: 20.000 kr
Athugið að ef öll 5 námskeiðin eru tekin hjá Ekli/SÍMEY er einungis greitt fyrir fjögur.
Hér getur þú kannað stöðu þína í endurmenntun.
Þú skráir þig inn með rafrænum skilríkjum
Heiti námskeiðs | Dags | Dagar | Tími | Staðsetning | Verð | Skráning |
---|