MYNDLISTARSMÐJA I - Teikning

Flokkur: Lengra nám

Megináhersla er lögð á að þátttakendur nái færni í grunnatriðum myndlistar og afli sér þekkingar og leikni með vinnu sinni. Þátttakendur efla skapandi hugsun og læra að fanga hugmyndir sínar sem þeir síðan útfæra á margvíslegan hátt. Þátttakendur kynnast einnig ýmsum aðferðum við framsetningu hugmynda sinna, notkun mismunandi áhalda og mikilvægi frágangs á myndverkum sínum. Námskeiðið byggist á fyrirlestrum, verklegri vinnu og vettvangsheimsóknum. Þátttakendur halda verkdagbók/skissubók meðan á námskeiði stendur.  Myndlistarsmiðja I er ætluð einstaklingum 20 ára og eldri.

Lengd: Námskeiðið er 80 klst.
Forkröfur náms: Engar
Kennari: Bryndís Arnardóttir (Billa)
Verð: 34.000 kr. (birt með fyrirvara um hækkun skv. ákvörðun Fræðslusjóðs)
Hámark 10 þátttakendur
p.s. Ekki gleyma að kanna möguleikana á styrkjum hjá stéttarfélögum ykkar og fræðslusjóðum!

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð Skráning