Farið í helstu atriði laga og reglugerða sem lúta beint eða óbeint að atvinnumennsku bílstjóra. Þar má helst telja reglur um aksturs- og hvíldartíma ökumanna, notkun ökurita, notkun öryggis- og verndarbúnaðar og eftirlit Samgöngustofu með stórum ökutækjum. Einnig er farið í helstu atriði í lögum um fólksflutninga, vöruflutninga og efnisflutninga á landi og umferðarlög eftir því sem við á. Þar sem atvinnuréttindi bílstjóra gilda innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) er einnig farið nokkuð í reglur og ferli sem tengjast flutningum á milli landa.
Forkröfur náms: Ætlað atvinnubílstjórum sem hafa fengið réttindi sín fyrir 10. september 2013. Einnig þeim sem vilja endurnýja ökuskírteinið sitt með ökuréttindaflokki D1 og D til farþegaflutninga í atvinnuskyni og í flokki C1 og C til vöruflutninga í atvinnuskyni.
Athugið að nauðsynlegt er að skrá sig hér á síðunni. Þeir sem ekki eru skráðir þurfa mögulega frá að hverfa.
Verð: 20.000 kr
Athugið að ef öll 5 námskeiðin eru tekin hjá Ekli/SÍMEY er einungis greitt fyrir fjögur.
Hér getur þú kannað stöðu þína í endurmenntun.
Þú skráir þig inn með rafrænum skilríkjum
Heiti námskeiðs | Dags | Dagar | Tími | Staðsetning | Verð | Skráning |
---|