Heimahjúkrun, aðferðir til að takast á við depurð og þunglyndi

Flokkur: Fyrirtækjaskólar

Þetta námskeið er aðeins ætlað starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN).

Á námskeiðinu verður skoðuð samþætting þjónustu við aldraða sem búa í heimahúsi. Margir glíma við miklar breytingar á efri árum. Líkamleg heilsa fer hrakandi og oft hefur einstaklingurinn upplifað missi, sorg, einmannaleika og depurð. Farið er að draga úr virkni hans og kvíði yfir að missa tök á færni getur aukist. Þunglyndi og jafnvel uppgjör við lífið sjálft er eitthvað sem oft þarf að takast á við sem og að verða háðir umönnun nánustu ættingja og/eða fagfólks. Mikilvægt er að í allri umönnun sé haft í huga að sá aldraði fái að tjá sig og gera það sem hann getur sjálfur.

Leiðbeinandi:   Salbjörg Bjarnadóttir, geðhjúkrunarfræðingur og verkefnastjóri hjá Embætti   landlæknis.

Staðnámskeið, dagar og tími:

  • 4.október Sauðárkrókur 8:00-16:00
  • 5.október Akureyri 8:00-16:00
  • 6.október Húsavík 8:00-16:00

Leiðbeinandi:   Salbjörg Bjarnadóttir, geðhjúkrunarfræðingur og verkefnastjóri hjá Embætti   landlæknis.

Frekari upplýsingar varðandi námskeið HSN gefa:
Kristín Björk - 460-5724 - netfang: kristin@simey.is
Ingunn Helga - 460-5727 - netfang: ingunn@simey.is

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð