Verkefnastjórnun - fyrstu skrefin

Flokkur: námskeið

Á námskeiðinu er farið í grunninn á verkefnastjórnun sem og hvað verkefnastjórnun er og hvar hún getur nýst. Áhersla er á undirbúning og eftirfylgni verkefna til að tryggja árangur. Námskeiðið veitir heildarsýn á uppbyggingu verkefna og hvernig hægt er að beita verkefnastjórnun á lítil sem stór verkefni. 

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Skilgreiningu á hvað er verkefni og hvað er verkefnastjórnun.
  • Undirbúning verkefna og ræs.
  • Hvernig skilgreina á markmið verkefna og hvernig árangur er metinn.
  • Uppsetning verkefnis: Hvernig tíma- og kostnaðaráætlanir líta út.
  • Eftirfylgni verkefnisáætlunar.
  • Skil og lúkning verkefna. 

Markmið:

  • Að auka skiling á verkefnastjórnun og leiðum til betri árangurs.
  • Að þróa hæfni í að taka við verkefnum og leysa þau.

Fyrirkomulag: Kennsla fer fram með fyrirlestrum og umræðum. Tekin verða fyrir hagnýt og raunveruleg verkefni sem flestir ættu að geta samsvarað sig við. Í lok námskeiðs fá þátttakendur viðurkenningarskjal frá EHÍ hafi þeir staðist námskeiðið.

Leiðbeinandi: Sveinbjörn Jónsson M.Sc. í verkfræði og MPM

*Athugið að sjóðir stéttarfélaga greiða fyrir starfsmenn, sem eru félagsmenn í aðildarfélögum Sveitamenntar, Ríkismenntar, Starfsmenntar og þeim félögum sem hafa gert samstarfssamning við Starfsmennt í gegnum mannauðssjóði. Þetta á t.a.m. við um félagsmenn SFR, Kjöl og starfsmenn ríkis og sveitarfélaga í Einingu Iðju. Nánari upplýsingar um aðildarfélög Starfsmenntar má finna hér. Aðilar í Starfsmennt skrá sig hér www.smennt.is

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð Skráning