Þetta námskeið er aðeins ætlað starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN).
Farið verður yfir muninn á streitu, kulnun og sjúklegri streitu? Þá verður þátttakendum gefin verkfæri til að greina streitu og kenndar rannsakaðar aðferðir henni til forvarnar og úrlausna. Greinarmunur verður gerður á því hvar ábyrgð starfsmanna liggur og hvernig starfsfólk getur aukið afköst sín án þess að auka við streituna. Fjallað verður um samskipti sem stuðla að vellíðan á vinnustað og koma í veg fyrir streitu. Að lokum verður stutt kynning á starfsemi Streitumóttökunnar.
Dæmi um algengar spurningar sem svarað verður á námskeiðinu:
Hvers vegna er streita og kulnun orðin svona algeng í dag?
Hver er munurinn á streitu og kulnun?
Hvort er um að ræða ástand eða sjúkdóm?
Hvar liggur ábyrgð starfsmanna vs. stjórnenda?
Með hvaða hætti næ ég að blómstra í starfi?
Hvað segja nýjustu rannsóknir?
Á streittur einstaklingur afturgengt á vinnumarkaðinn?
Hverjir eru mest útsettir fyrir streitunni?
Leiðbeinandi: Helga Hrönn Óladóttir
Frekari upplýsingar varðandi námskeið HSN gefa:
Kristín Björk - 460-5724 - netfang: kristin@simey.is
Ingunn Helga - 460-5727 - netfang: ingunn@simey.is
Heiti námskeiðs | Dags | Dagar | Tími | Staðsetning | Verð | Skráning |
---|