Matreiðsla á ofnæmisfæði.

Flokkur: Fyrirtækjaskólar

Þetta námskeið er aðeins ætlað starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN).

Meginmarkmiðið með námskeiðinu er að bjóða upp á faglega fræðslu um fæðuofnæmi, alvarleika þess og hvernig tryggja megi góða og holla næringu. Það getur verið flókið að tryggja öruggt fæði og umhverfi fyrir einstakling með fæðuofnæmi. Ljóst er að næringarefni geta orðið af skornum skammti þegar fæðuofnæmi er til staðar og felst fræðslan m.a. í því að fara yfir hvaða fæðutegundir geta komið í staðinn fyrir mjöl, korn, mjólk, egg, fisk, hnetur o.fl. til að fullnægja orku- og næringarlegum þörfum og skapa fjölbreytni í fæðu barna og fullorðinna. Verklegi hlutinn felur í sér eldun og bakstur ýmissa rétta og útfærsla uppskrifta á mismunandi máta eftir því hvaða ofnæmi er um að ræða. 

 Bóklegt 2 ½ - 3 klst með stuttu kaffihléi. 

*Tryggjum næga orku og góða næringu með hollum, góðum og öruggum mat.                            

* Er hægt að tryggja öryggi þeirra sem eru með fæðuofnæmi? Hver er okkar réttur?

Verklegt 3 ½ - 4 klst 

*Eldum góðan og næringarríkan mat fyrir alla, líka þá sem eru með fæðuofnæmi og óþol.Umræður og smakk

 

Leiðbeinendur:

Fríða Rún Þórðardóttir, næringarfræðingur og næringarráðgjafi Eldhúsi Landspítala, formaður AO. 

Guðný Jónsdóttir, Næringarrekstrarfræðingur og kennari matartæknabraut MK  

Selma Árnadóttir, varaformaður AO, ofnæmisráðgjafi og móðir ofnæmisbarns.

 

Húsavík 16. maí kl 16-19 (bóklegt) og 17. maí kl 16-20 (verklegt)
Sauðárkrókur  16. maí kl 16-20 (verklegt) og 17. maí kl 16-19 (bóklegt)

Skráningar  hjá Þekkingarneti Þingeyinga á hac@hac.is eða í síma 464-5100 og hjá Farskólanum Sauðárkróki í síma 455-6010, farskolinn@farskolinn.is og www.farskolinn.is

 

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð