Mannlegi millistjórnandinn - Markviss stjórnendaþjálfun

Flokkur: Fyrirtækjaskólar

Þetta námskeið er aðeins ætlað starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN). 

Stjórnendaþjálfun fyrir bæði millistjórnendur og stjórnendur sem vilja ná árangri með áherslu á „mannlegu“ þætti stjórnandans. 

Leiðbeinendur: Hagvangur 

Lögð verður áhersla á mikilvægi þess að þekkja sjálfan sig og fólkið sitt sem stjórnandi. Námið samanstendur af tveimur heilsdags vinnustofum og einstaklingsviðtölum. Vinnustofurnar eru byggðar upp á stuttum fyrirlestrum og fjölmörgum hagnýtum æfingum. 

Námskeiðið fer fram í fjórum vinnustofum – tveimur á vorönn 2020 og tveimur á haustönn 2020.  
Orkustjórnun - 12. febrúar frá kl. 10-15 í SÍMEY Þórsstíg 4 

Farið er yfir hvernig stjórnandinn getur nýtt orkustjórnun til að auka gæði vinnunnar, afköst og framlegð og um leið aukið starfsgleði og stuðlað að auknu heilbrigði sínu og sinna starfsmanna. Farið er yfir helstu þætti orkustjórnunar og hvernig er hægt að nýta þá til að auka daglega orku. 

  • Líkamlegi þátturinn; Grunnurinn að góðri orkustjórnun. Hreyfing, líkamsþjálfun, næring, svefn, hvíld. 

  • Hugræni þátturinn; Skipulag, einbeiting, viðbrögð við áreiti. 

  • Tilfinningalegi þátturinn; Stjórna eigin tilfinningum, yfirvegun í samskiptum. 

  • Tilgangurinn; Markmið, hugsjónir. 

  • Venjur og breytingar; Stutt kynning á því hvernig maður tekur út slæma ávana og innleiðir góðar orkuvenjur í staðinn. 

Samskipti og lausn ágreinings - 5. mars frá kl. 10-15 í SÍMEY Þórsstíg 4 

Markmiðið vinnustofunnar er fyrst og fremst að efla einstaklingana í sinni samskiptafærni og láta þá ákveðin verkfæri til að byggja upp áhrifaríkt samstarf ásamt því að fara yfir árangursríkar leiðir til þess að takast á við óhjákvæmlegar áskoranir í tengslum við ágreining og/eða óánægju sem er óhjákvæmileg í samstarfi við aðra.  

  •  Stjórnandinn sem einstaklingur, Hlutverk, tilgangur og sjálfstraust. 

  • Áhrifarík samskiptatækni 

  • Endurgjöf og hvatning 

  • Erfið starfsmannamál og lausn ágreinings.  

Stjórnun mannauðs - Haustönn 2020 

Vinnustofan fjallar dagleg viðfangsefni stjórnandans í tengslum við stjórnun fólks. Kynntar og æfðar eru hagnýtar leiðir sem stjórnendur geta nýtt til að virkja og hvetja starfsmenn sína auk þess að efla þá við að taka á erfiðum starfsmannamálum. 

  • Stjórnandinn, hlutverk og áskoranir. 

  • Ráðningarferli og mat á umsækjendum. 

  • Móttaka og þjáfun starfsfólks. 

  • Frammistöðumat   

  • Erfið samtöl (frammistöðu og uppsagnar) og áhrif tilfinninga.  

 Leiðtoginn og breytingastjórnun  - Haustönn 2020

Fjórða og síðasta lotan fjallar um leiðtogann og mismunandi leiðtogastíla. Áhersla er lögð á þjónandi forystu á tímum breytinga.  

  • Framsýni, mótun og miðlun framtíðarsýnar. 

  •  Þjónustuhlutverk stjórnandans. 

  •  Hvernig vinnum við starfsfólk á okkar band og löðum fram það besta í hverjum starfsmanni? 

  •  Virk hlustun og aðgerðir sem stuðla að eflingu starfsfólks.

Frekari upplýsingar varðandi námskeið HSN gefa:
Kristín Björk - 460-5724 - netfang: kristin@simey.is
Ingunn Helga - 460-5727 - netfang: ingunn@simey.is

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð Skráning