Forgangsakstur

Flokkur: Fyrirtækjaskólar

Þetta námskeið er aðeins ætlað starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN).    

Á námskeiðinu verður farið yfir lög og reglugerðir sem snúa að forgangsakstri, ábyrgð ökumanns sem ekur forgangsakstur og eðlisfræði tengda akstri. Þátttakendur fá einnig innsýn í norsku AMF aðferðina (akstur með forgangi) sem slökkviliðs og sjúkraflutningamenn þar vinna eftir og unnið er eftir innan lögreglunnar hér á landi. 

Námskeiðið er ætlað starfsmönnum HSN sem þurfa að aka forgangsakstur.  Starfsmenn hafa val um tvær tímasetningar.  

Leiðbeinandi: Guðjón S. Magnússon, slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður, ökukennari og leiðbeinandi í forgangsakstri. 

 

 

Heiti námskeiðs Dags Dagar Tími Staðsetning Verð