Grunnmenntaskólinn
Lýsing: Veturinn 2010-2011 mun SÍMEY bjóða upp á nám í Grunnmenntaskólanum.
Í Grunnmenntaskóla er lögð áhersla á að námsmenn læri að læra, efli sjálfstraust sitt og lífsleikni. Nám byggir á frammistöðu og ábyrgð einstaklings en einnig samvinnu og samábyrgð allra sem koma við sögu þess.
Grunnmenntaskólinn er 300 kennslustunda nám
Tilgangur skólans er að stuðla að jákvæðu viðhorfi námsmanna til áframhaldandi náms og
auðvelda þeim að takast á við ný verkefni í vinnu. Í náminu er lögð áhersla á að námsmenn
læri að læra, efli sjálfstraust sitt og lífsleikni. Námið er ætlað fullorðnu fólki á
vinnumarkaði, eldra en 20 ára og með stutta formlega skólagöngu.
Helstu námgreinar eru:
Sjálfsstyrking og samskipti
Námstækni
Íslenska
Framsögn og ræðumennska
Enska
Stærðfræði
Tölvu- og upplýsingatækni
Verkefnavinna
Náms- og starfsráðgjöf
Færnimappa
verð kr. 54.000






