Stoðir - Kvöldnám (Háskólastoðir)
Lýsing: Tímabil: Ágúst 2010 til maí 2011
Háskólastoðir er einnar annar nám unnið í samstarfi við Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar, Fræðslumiðstöð Atvinnulífsins og Keili, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs. Námið er ætlað fólki á vinnumarkaði, eldra en 20 ára og með stutta formlega skólagöngu.
Markmið Háskólastoða er að stuðla að jákvæðu viðhorfi námsmanna til áframhaldandi náms og auðvelda þeim að takast á við ný verkefni. Í náminu er lögð áhersla á að nemendur læri að læra, efli sjálfstraust sitt og lífsleikni. Námið í Háskólastoðum tekur um 10 mánuði og er nám samhliða starfi og gefur um 50 einingar. Námið fer fram þrjá daga í viku frá kl. 16:00-19:00 og annan hvern laugardag.
Helstu námsgreinar eru stærðfræði, íslenska, upplýsingatækni, enska og danska. Kennsluhættir Háskólastoða miða við þarfir fullorðinna nemenda og leitast er við að veita nemendum góða þjónustu. Þannig skipa sjálfsefling, námstækni og hópefli stóran þátt í skólastarfinu. Hluti kennslu í Háskólastoðum byggist á tölvum og því er nemendurm ráðlagt að verða sér út um fartölvu með Office 2007 hugbúnaði.
Nám í Háskólastoðum kostar 110.000 kr. Hægt er að sækja um styrki hjá stéttarfélögum fyrir skólagjöldum. Jafnframt styrkir Vinnumálastofnun þá nemendur sem eru án atvinnu, eftir að gengið hefur verið frá námssamningi. Námssamning við Vinnumálastofnun þarf að gera áður en nemandinn hefur námið. Greiða þarf námið fyrirfram, eigi seinna en 2 vikum áður en að nám hefst. Nánari upplýsingar um greiðslufyrirkomulag námsins fæst hjá SÍMEY, www.simey.is eða í síma 4605720.
Nemendur sem ljúka námi í Háskólastoðum eiga kost á því að sækja um nám á Háskólabrú Keilis. Nám í Háskólabrú er lánshæft hjá LÍN, með þeim skilyrðum að námsmaður hafi áður lokið lánshæfu starfsnámi, þ.e. burtfararprófi / sveinsprófi úr skóla, eða hafi jafngilda reynslu úr atvinnulífinu, þ.e. starfsreynslu sem samsvarar fullri atvinnuþátttöku í a.m.k. fimm ár. ( sjá nánar á www.lin.is).
Skráning fer einungis fram á vefslóðinni www.simey.is
Nánari upplýsingar má nálgast hjá Hildi Betty Kristjánsdóttur 460-5724 betty@simey.is eða hjá Valgeiri Magnússyni 460-5723 valgeir@simey.is






