<span>SIMEY</span>

Febrúar 2012
Sun Mán Þri Mið Fim Fös Lau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829   

Fyrir verslun og þjónustu

 

Raunfærnimat verður sífellt mikilvægara til þess að kortleggja færni sína og auka möguleika sína til að bæta við sig í námi eða annari uppbyggingu. 
Margir einstaklingar á vinnumarkaðnum hafa í gegnum áralanga reynslu byggt upp umtalsverða færni, en ekki lokið námi af einhverjum ástæðum. Þessir einstaklingar búa yfir raunfærni sem vert er að skoða og meta. Raunfærni er samanlögð færni sem einstaklingur hefur náð með ýmsum hætti, s.s. starfsreynslu, starfsnámi, frístundanámi, skólanámi, félagsstörfum og fjölskyldulífi. Sjá bækling um raunfærnimat á íslensku. Ráðgjafar SÍMEY gefa allar frekari upplýsingar um mat á raunfærni.

Í þessu verkefni er verið að meta þátttakendur á móti lengstu námsleið Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, Verslunarfagnáminu sem er 680 klst og metið til 51 einingar. Sjá námsskrá Verslunarfagnáms Hér.

ERTU ORÐIN/N 23 ÁRA?
HEFUR ÞÚ UNNIÐ Í VERSLUN Í A.M.K. 3 ÁR?

Þá gæti raunfærnimat í verslunarfagnámi verið eitthvað fyrir þig?

Í haust býður SÍMEY  á upp á raunfærnimat í verslunarfagnámi. 

Þátttakendur þurfa að hafa náð 23 ára aldri og hafa starfað í verslun í a.m.k. þrjú ár.  Bæði atvinnuleitendur og fólk í starfi  getur tekið þátt í raunfærnimatinu sem er þátttakendum að kostnaðarlausu

Að mati loknu verður þátttakendum, sem þess þurfa, boðið að taka þá áfanga sem upp á vantar til að ljúka verslunarfagnáminu.

Verslunarfagnám er starfstengt nám sem er ætlað að auka verslunarfærni og efla almenna og persónulega færni þátttakenda til að takast á við fjölbreytt og krefjandi  verkefni í nútímaverslun.

Verslunarfagnámið er á framhaldsskólastigi og er  51 eining.

Nánari upplýsingar veitir Heimir í heimir@simey.is eða í síma 460-5720