SIMEY

Fyrir bankastarfsmenn

 

Raunfærnimat verður sífellt mikilvægara til þess að kortleggja færni sína og auka möguleika sína til að bæta við sig í námi eða annari uppbyggingu. 
Margir einstaklingar á vinnumarkaðnum hafa í gegnum áralanga reynslu byggt upp umtalsverða færni, en ekki lokið námi af einhverjum ástæðum. Þessir einstaklingar búa yfir raunfærni sem vert er að skoða og meta. Raunfærni er samanlögð færni sem einstaklingur hefur náð með ýmsum hætti, s.s. starfsreynslu, starfsnámi, frístundanámi, skólanámi, félagsstörfum og fjölskyldulífi. Sjá bækling um raunfærnimat á íslensku. Ráðgjafar SÍMEY gefa allar frekari upplýsingar um mat á raunfærni.

-Skipulagt námskeið, leiðsögn og skráning á eigin reynslu úr starfi, félagsstarfi,  áhugasviðum.
- Gögn sem nýtast sem grunnur að framgangi í núverandi starfi eða í öðru starfi innan núverandi fyrirtækis
- Matshæf gögn fyrir þá sem vilja halda áfram í einhverskonar námi og byggja ofan á núverandi reynslu
- Öflugan stuðning við framkvæmd verkefna hjá hverjum og einum og leiðsögn um möguleg næstu skref. Sjá frekari upplýsingar  Hér

 

Námskeið í boði

ekkert skráð...

ekkert skráð...

ekkert skráð...