Námsskeiðsflokkar
SÍMEY Flokkar námsskeiðin og námsbrautirnar sínar niður í sex flokka eftir viðfangsefni og markmiði námsins.
Starfsnám:
Nám í þessum flokki er ætlað til að efla einstaklinga í starfi innan ákveðinnar starfsstéttar. t.d. stjórnendur, starfsólk í ferðaþjónustu, byggingarliðar, starfsólk í félagsþjónustu, skrifstofufólk o.s.frv. Í þessum flokki eru flestar námsbrautir á vegum Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins auk stakra námskeiða á vegum SÍMEY og annara fræðsluaðila.
Athygli er vakin á því að ófaglærðir einstaklingar sem starfa hafa innan iðngreina og í bönkum í a.m.k. fimm ár geta sótt um að fara í raunfærnimat og fá þannig starfsreynslu sína metna til áfanga innan framhaldsskólkerfisins. Nánari upplýisngar um hvernig best er að bera sig að er hér.
Almenn þekking:
Nám í þessum flokki leggu áherslu á að efla og/eða fylla upp í þá þekkingu sem gengið er útfrá að menn hafi að loknum grunnskóla. Hér er t.d. um að ræða námsleiðir sem er beint að einstaklingum með lestrarörðulgeika eins og lesblindu. Einnig er hér um að ræða nám sem er hannað fyrir fólk sem hefur hætt námi snemma en langar að taka upp þráðinn að nýju.
Persónuhæfni:
Námskeið sem falla undir persónuhæfni beinast að því styrkja og efla einstaklinginn sem persónu. Hér er að finna námsskeið í mannlegum samskiptum, sjálfsstyrkingarnámskeið, tjáning, hópefli o.s.frv.
Tungumál:
SÍMEY býður upp á stök 20 klst tungumálanámskeið bæði á vor- og haustönn. Vinsælustu tungumálin hjá okkur hafa verið enska, danska og norska en einnig hefur verið boðið upp á ítölsku, spænsku og japönsku.
Tölvur:
Í þennan flokk falla stök námskeið sem ætlað er að auka færni fólks á tölvur. Boðið er upp á námskeið sem ætluð eru byrjendum og upp í að bjóða upp á framhaldsnámskeið í einstökum forritum.
Tómstundir:
Í þessum flokki eru allskonar námskeið um allt mögulegt. Allt frá moltugerð og steinamálun yfir í landslagsljósmyndun og skyrtustrauunarnámskeið.
Námskeið í boði
Úrvinnsla gagna í Excel
Ljósmyndirnar í Picaza
Flakkað um heiminn á netinu
Hugkortagerð með XMIND
Hættur internetsins fyrir foreldra
Þýska Byrjendur
EXCEL II
Líkamsbeiting
Heimilið og byggingalist
Norska II
Lærdómsfyrirtækið
EXCEL I
Frágangur á lopapeysum
Hópsálfræði
Af hverju að borga fyrir hönnun?
Tíma- og verkefnastjórnun
Húsumsjón
Þróun þéttbýlis og skipulag
Nám fyrir starfsfólk í stjórnunareiningum-fjarnám
Tölvunámskeið fyrir eldri borgara, framhald
Innbrot á heimili
Að kenna börnum myndlist
Leiklestur og fræðsla
Photoshop – Lærðu að vinna með ljósmyndir!
Saumanámskeið
Förðunarnámskeið fyrir konur á besta aldri
Enska fyrir konur - byrjendanámskeið
Danska Byrjendur
Hvatning í starfi
Tölvupósturinn sigraður
Enska II
Tölum dönsku á mánudögum, framhald III
Gott tölvunámskeið
Víngerðarnámskeið
Ítalska I
Norska I
Tölvunámskeið fyrir eldri borgara
Hvolpa- og unghundanámskeið
Enska fyrir atvinnulífið
Að tjá sig án kvíða
ekkert skráð...
ekkert skráð...
ekkert skráð...
Skref til sjálfshjálpar-Dalvík
Leikskólabrú
Skólaliðabrú
Stoðir Dagtími
Stuðningsfulltrúabrú
Skrifstofuskólinn Kvöld
Félagsliðabrú
Stoðir - Kvöldnám
Fagnámskeið 1
Landnemaskólinn
Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum
Skref til Sjálfshjálpar
Skrifstofuskólinn dagtími
Sterkari starfsmaður
Fiskur og ferðaþjónusta
Grunnmenntaskólinn

