SIMEY

Þjónusta til fyrirtækja og stofnanna

Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar býður fyrirtækjum og stofnunum á Eyjafjarðarsvæðinu breiða þjónustu í málefnum sem tengjast starfsþróun starfsmanna þeirra.  Markmiðið er að sníða þjónustuna að þörfum hvers og eins. 
Sem dæmi um þjónustu má nefna:

  • Skipulaggning og utanumhald með fyrirtækjaskólum 
  • Skipulaggning á einstökum námskeiðum 
  • Þarfagreiningar o.fl. 

Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar veitir fyrirtækjum og stofnunum ráðgjöf í starfsþróunarmálum.  Starfþróunarmál eru mjög vítt hugtak og má segja að þau spanni allt frá aðstoða við að koma á koppinn einstökum námskeiðum í það að vera ráðgefandi við skipulagningu heildar fræðsluáætlanir fyrir fyrirtæki og stofnanir.

Við leggjum mjög mikla áherslu á að klæðskerasauma þessa þjónustu eftir þörfum hvers og eins viðskiptavinar og hvetjum ykkur því eindregið til að hafa samband við okkur og ræða þetta mikilvæga verkefni stjórnenda fyrirtækja og stofnana.

Sú aðferð sem við notum við slíka ráðgjöf heitir Markviss og má lesa nánar um hana hér á síðunni


Námskeið í boði

ekkert skráð...

ekkert skráð...

ekkert skráð...