Að verða hluti af heild
SÍMEY skipuleggur nú annað árið í röð námskeiðið „Að verða hluti af heild“. Námskeiði er ætlað áofaglærðum starfsmönnum grunnskólanna á Akureyri. Mikil ánægja hefur verið með þetta námskeið og má segja að það sé orðið hluti af starfsdögum grunnskólanna. Tilgangurinn með námskeiðinu er að efla og hvetja starfsmenn áfram í kröfuhörðum störfum fyrir komandi vetur. Það er von og trú allra sem að þessu verkefni koma að vel takist til og skili þátttakendum uppbyggilegri fræðslu sem hægt er að nýta sér í starfi. Um leið sjá starfsmenn SÍMEY það sem áskorun að taka á móti svo kraftmiklum hópi starfsmanna Akureyrarbæjar í sí-og endurmenntun.
Í þetta sinn taka 110 starfsmenn þátt og fara í gegnum um 15 klst. námskeið sem samanstendur af fyrirlestrunum; tölvu- og upplýsingalæsi, samskipti nemenda og starfsfólks, að takast á við kröfuharða nemendur og vinnustofu um leikinn. Leiðbeinendur á námskeiðunum eru frábærir og hafa mikla reynslu á sínu sviði. Öllum þátttakendur býðst að sækja viðtal hjá náms- og starfsráðgjafa til að skoða frekari möguleika til sí- og endurmenntunar að námskeiði loknu.
Einni gstendur tilað halda sambærilegt námskeið á Dalvík fyrir starfsmenn leikskóla og grunnskóla í næstu viku.
Námskeiðið styrkja Starfsmenntaráð, Mannauðssjóður Kjalar og Sveitamennt – starfsmenntunarsjóður starfsmanna sveitarfélaga á landsbyggðinni.






