Draumar - auður svefnsins
Draumar - auður svefnsins er námskeið um drauma sem Valgerður H. Bjarnadóttir heldur í Akureyrar Akademíunni, Þórunnarstræti 99, Akureyri.
Kynningarnámskeið (4 klst): Þriðjudaginn 31. ágúst kl.18 – 22
Okkur dreymir öll, í hvert sinn sem við sofum.
Styttra námskeiðið er kynning á hlutverki og eðli drauma og hvernig vinna má með eigin drauma til að öðlast aukna sjálfsþekkingu, lífsfyllingu og þroska. Kynntar eru einfaldar aðferðir sem geta nýst vel til að muna, rifja upp og vinna með drauma.
Ítarlegt námskeið(12 klst): Þriðjudaga 7. til 28. sept kl.18 – 21
Á lengra námskeiðinu er fjallað dýpra um hlutverk og eðli drauma og hvernig vinna má með eigin drauma og annarra til að öðlast aukna sjálfsþekkingu, lífsfyllingu og þroska. Á námskeiðinu er unnið í hópum og pörum og þátttakendur tileinka sér ýmsar aðferðir sem geta nýst vel til að muna, rifja upp og vinna með drauma í einkalífi og starfi. Rýnt er í táknmál draumanna og hugmyndir og kenningar um drauma allt frá formæðrum okkar og –feðrum og frumbyggjum jarðar, til arftaka þeirra Freud og Jung.
Verð kr. 6.000 (4 klst) og 18.000 (12 klst)
Skráning og nánari upplýsingar á www.vanadis.is , með tölvupósti á netfangið vanadis@vanadis.is og í síma 895 3319






