140 starfsmenn grunnskólanna útskrifast af námskeiði
Þann 20.ágúst luku starfsmenn grunnskólanna aðrir en kennarar námskeiðinu „Að verða hluti af heild“. Námskeiðið var þróað af SÍMEY-Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar í kjölfar MARKVISS verkefnis sem unnið var í Lundarskóla árið 2009. Verkefnið gekk afar vel og í framhaldinu réðst SÍMEY í útfærslu fyrir alla aðra starfsmenn grunnskóla Akureyrarbæjar. Námskeiðið styrkti Starfsmenntaráð, Mannauðssjóður Kjalar og Sveitamennt – starfsmenntunarsjóður starfsmanna sveitarfélaga á landsbyggðinni.
Markmið námskeiðsins var að efla starfsfólk og starfsanda og auka kunnáttu á tölvur og ýmsa upplýsingatækni. Auk þess er lögð áhersla á að hvetja starfsfólk til frekari sí- og endurmenntunar. Námskeiðið skiptist í tvo hluta; annars vegar hópefli, þar sem lögð er áhersla á starfsandann, teymisvinnu og einstaklingsframtak, og hins vegar tölvukennslu, þar sem áhersla er lögð á upplýsingalæsi, vefpóst og internetið.
Í kjölfar námskeiðsins stóð öllum þátttakendum til boða viðtal með náms- og starfsráðgjafa hjá SÍMEY til að skoða frekari möguleika á námi eða annarri uppbyggingu.






