23 útskrifast úr raunfærnimati bankamanna
Miðvikudaginn 19.maí útskrifaðist fyrsti hópur bankamanna úr verkefninu raunfærnimat bankamanna á Norðurlandi, þjónustufulltrúar og gjaldkerarar. Um er að ræða samstarfsverkefni Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja (SSF), bankanna, Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins (FA) og SÍMEY sem sá um framkvæmdina.
Markmið raunfærnimatsins er að þátttakendur fái tækifæri til að draga fram raunfærni sína, fá hana metna og viðurkennda,- og ekki síður gera hana sýnilega þeim sjálfum og öðrum. Þátttakendur safna saman færni sinni, reynslu og þekkingu sem aflað hefur verið með formlegu og óformlegu námi sem og reynslu úr lífi og störfum. Náms- og starfsráðgjafar og matsaðilar innan og utan bankans hitta þátttakendur í viðtölum þar sem fram fer mat út frá viðmiðum starfsins, með sjálfsmati, viðtölum og lausn raundæma.
Verkefnið byggir á Leonardo verkefninu „Gildi starfa“ (e. Value of work) sem unnið var með þátttöku sex Evrópulanda þar sem þróuð voru færniviðmið fyrir starfsmenn fjármálafyrirtækja.
Alls komu þátttakendur frá sjö fjármálafyrirtækjum; Arionbanka, Íslandsbanka, Landsbankanum, Byr og þrem Sparisjóðum.
SÍMEY óskar þessum þáttakendum til hamingju með góðan árangur og þakkar samstarfsaðilum mjög gott samstarf í verkefninu.






