<span>SIMEY</span>

Febrúar 2012
Sun Mán Þri Mið Fim Fös Lau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829   

Háskólabrú hjá SÍMEY

Háskólabrú Keilis er aðfararnám að háskólanámi og verður það kennt í staðnámi á Akureyri næsta haust. Námið veitir nemendum góðan undirbúning undir háskólanám og er þróað í samstarfi við Háskóla Íslands.

Nám á Háskólabrú í staðnámi er fullt nám og er því lánshæft samkvæmt reglum Lánasjóðs Íslenskra námsmanna (LÍN).

Námið hefst í ágúst og lýkur ári síðar. Að loknu námi uppfylla nemendur almenn inntökiskilyrði innlendra háskóla og telst námið sambærilegt stúdentsprófi samkvæmt samningi Keilis, HÍ og menntamálaráðuneytisins.

Umsóknarfrestur er til 15. júní.

Nánari upplýsingar eru hjá Betty@simey.is, valgeir@simey.is eða í síma 460-5720