<span>SIMEY</span>

Febrúar 2012
Sun Mán Þri Mið Fim Fös Lau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829   

SÍMEY molinn sló í gegn

Nóg er um hæfileikaríka nemendur og kennara hjá SÍMEY og kom það enn betur í ljós í tengslum við afmælið og undirbúning þess. Afmælisveislan samanstóð að miklu leiti með atriðum frá nemendum og kennurum.

En það var ekki þar við setið heldur vorum við hjá SÍMEY svo einstaklega heppin að eiga konfektgerðarmann í röðum nemenda okkar sem steig fram og útbjó sérmerkta konfektmola með merki SÍMEY á.

Heitir sá mæti nemi Rúnar Jóhannesson og hefur starfað við sælgætisgerð frá 12 ára aldri meira og minna, bæði hjá stóru fyrirtækjunum og verið í eigin rekstri. 
Upphaflega vorum við bara að hugsa um að vera með sérgert konfekt fyrir veisluna en Rúnar toppaði allar hugmyndir okkar og setti sig í samband við kollega sína í Evrópu og fann leið til að prenta á súkkulaði og afraksturinn var glæsilegur eins og sjá má á myndinni.

Við kunnum honum bestu þakkir fyrir.