<span>SIMEY</span>

Febrúar 2012
Sun Mán Þri Mið Fim Fös Lau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829   

Baujan Sjálfstyrkingarnámskeið

 

Námskeiðið er  fyrir fagfólk og aðra sem vilja tileinka sér aðferðir Baujunnar. Sjálfstyrking sem byggð er á tilfinningavinnu og slökunaröndun. Kennd aðferð, hugsun og sjálfsuppbygging sem Baujan byggir á.Þátttakendur fá til eigin afnota allt efni Baujunnar. Námskeiðið tekur 10 kennslustundir og er skipt niður í tvo áfanga.

Stutt lýsing:

Baujan er auðveld sjálfstyrkingaraðferð sem byggir á tilfinningavinnu og slökunaröndun. Aðferðin miðar að því að hafa stjórn á tilfinningalegri líðan sinni. Námskeiðið er ætlað þeim sem vilja nýta þessa aðferð til uppbyggingar skjólstæðinga sinna eða sjálfra sín. Náms-, starfs- og félagsráðgjafar, kennarar, sálfræðingar, hjúkrunarfræðingar og aðrir þeir sem vinna að mannrækt hafa sótt námskeiðið. Baujan er kennd eftir stundatöflu í mörgum skólum landsins. Eftirspurn og árangur er mikill.   Sjá nánari lýsingu á  www.baujan.is 

aðferð til að læra að þekkja tilfinningar sínar.

aðferð til að geta stjórnað líðan sinni .

auðveld og varanleg sjálfstyrkingaraðferð 

Markmið:

Að loknu námskeiði eiga þátttakendur að þekkja aðferðir Baujunnar og geta nýtt þær við ráðgjöf, kennslu og til eigin uppbyggingar.

Viðfangsefni:

Farið er yfir grunntilfinningar og hvernig þær tengjast allri líðan. 

Kennd er slökunaröndun og fjallað um tengsl öndunar og tilfinninga. 

 

Vinnulag:

Fyrirlestur, umræður og þjálfun. 

Öll gögn til sjálfstæðrar vinnu, kennslu og fyrirlestrahalds fylgja með á geisladiski.

 

Kennari á námskeiðinu er Guðbjörg Thóroddsen (Bauja), skráning á námskeiðið er hjá henni á netfang bauja@mi.is eða í síma 6996934 eða 5667611

Námskeiðið er kennt föstudaginn 23. apríl frá 13:00-16:30 og laugardaginn 24. apríl kl. 10:00-10:30

Verð á námskeiðið er 45.000 kr.