Formleg opnun nýs námsvers SÍMEY á Dalvík

Nýtt námsver SÍMEY á Dalvík er nú í Víkurröst.
Nýtt námsver SÍMEY á Dalvík er nú í Víkurröst.

SÍMEY hefur fært sig um milli húsa á Dalvík – úr gamla húsi Dalvíkurskóla á jarðhæð Víkurrastar. Nýtt námsver var opnað þar formlega í gær, föstudaginn 15. september.

Tónlistarskólinn á Tröllaskaga og Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar hafa undanfarin ár deilt húsnæði í gamla barnaskólahúsinu á Dalvík og nú hafa báðar stofnanir flust yfir í Víkurröst. Þar hafa SÍMEY og Tónlistarskólinn komið sér fyrir á neðri hæðinni og einnig hefur skólinn til afnota rými á efri hæðinni.

Við formlega opnun hins nýja námsvers í gær sagði Valgeir Blöndal Magnússon fagnaðarefni að SÍMEY hefði nú afnot af þessu góða rými í Víkurröst en bæði er um að ræða minni og stærri kennslurými og skrifstofurými.

Starfsemi SÍMEY á Dalvík er og hefur verið fjölbreytt. Boðið er upp á námskeið af ýmsum toga og er sérstök ástæða til þess að geta fjögurra anna náms í fisktækni sem hópur starfsmanna Samherja á Dalvík stundar.

Þessar myndir voru teknar við formlega opnun námsversins á Dalvík.

Á þessari mynd er Svanfríður Inga Jónasdóttir, verkefnastjóri SÍMEY á Dalvík, Kristín Björk Gunnarsdóttir, verkefnastjóri SÍMEY á Akureyri og Valgeir B. Magnússon, framkvæmdastjóri SÍMEY.