SÍMEY Flokkar námsskeiðin og námsbrautirnar sínar niður í sex flokka eftir viðfangsefni og markmiði námsins.
Starfsnám:
Nám í þessum flokki er ætlað til að efla einstaklinga í starfi innan ákveðinnar starfsstéttar. t.d. stjórnendur, starfsfólk í ferðaþjónustu, byggingarliðar, starfsfólk í félagsþjónustu, skrifstofufólk o.s.frv. Í þessum flokki eru flestar námsbrautir á vegum Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins auk stakra námskeiða á vegum SÍMEY og annarra fræðsluaðila.
Athygli er vakin á því að ófaglærðir einstaklingar sem starfa hafa innan iðngreina og í bönkum í a.m.k. fimm ár geta sótt um að fara í raunfærnimat og fá þannig starfsreynslu sína metna til áfanga innan framhaldsskólakerfisins. Nánari upplýsingar um hvernig best er að bera sig að er hér.
Almenn þekking:
Nám í þessum flokki leggur áherslu á að efla og/eða fylla upp í þá þekkingu sem gengið er útfrá að menn hafi að loknum grunnskóla. Hér er t.d. um að ræða námsleiðir sem er beint að einstaklingum með lestrarörðuleika eins og lesblindu. Einnig er hér um að ræða nám sem er hannað fyrir fólk sem hefur hætt námi snemma en langar að taka upp þráðinn að nýju.
Persónuhæfni:
Námskeið sem falla undir persónuhæfni beinast að því styrkja og efla einstaklinginn sem persónu. Hér er að finna námsskeið í mannlegum samskiptum, sjálfsstyrkingarnámskeið, tjáning, hópefli o.s.frv.
Tungumál:
SÍMEY býður upp á stök 20 klst. tungumálanámskeið bæði á vor- og haustönn. Vinsælustu tungumálin hjá okkur hafa verið enska, danska og norska en einnig hefur verið boðið upp á ítölsku, spænsku og japönsku.
Tölvur:
Í þennan flokk falla stök námskeið sem ætlað er að auka færni fólks á tölvur. Boðið er upp á námskeið sem ætluð eru byrjendum og upp í að bjóða upp á framhaldsnámskeið í einstökum forritum.
Tómstundir:
Í þessum flokki eru allskonar námskeið um allt mögulegt. Allt frá moltugerð og steinamálun yfir í landslagsljósmyndun.