Danska fyrir byrjendur
Lýsing: Námskeið fyrir þau sem litla dönsku hafa lært en langar að kunna meira. Markmið námskeiðsins er að auka skilning þátttakenda á dönsku með hlustun, lestri og tali.
Stuðst verður við námsefni kennarans og ein nýleg dönsk smásaga verður lesin.
Alice Emma er dönsk að uppruna, er kennari að mennt en hefur búið á Akureyri síðan 1973.
Fræðsluaðili og staður: SÍMEY, Þórsstíg 4, Ak.
Leiðbeinandi: Alice Emma Zackrisson, B.Ed.
Tími og dags: Miðvikudagur, 23. feb. – 23. mars. frá kl. 19 – 21
Tímafjöldi: 16 klst.
Verð kr: 29.500. -








