Úrvinnsla gagna í Excel
Lýsing: Þetta námskeið er fyrir fólk sem hefur grunnþekkingu í Excel. Námskeiðið gengur útá að vinna úr gögnum í Excel hvort sem gögnin eru fengin af internetinu eða úr listum sem til eru fyrir, t.d. úr bókhaldskerfi, félagaskrám eða í raun hverju sem er.
Kenndar verða aðferðir til að reikna aldur frá kennitölu, vartöluprófun kennitalna, samanburður, krossvensl og samkeyring á töflum. Einnig verður farið í úrvinnslu gagnanna yfir í gröf og skýrslur.
Fræðsluaðili og staður: Tölvufræðslan, Þórsstíg 4, Ak.
Leiðbeinandi:Vilberg Helgason
Tími og dags:Hefst þegar næg þátttaka fæst
Tímafjöldi: 9 klst.
Verð kr: 19.500 -








