<span>SIMEY</span>

Febrúar 2012
Sun Mán Þri Mið Fim Fös Lau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829   

Hópsálfræði

Lýsing: Ferli í vinnu með hópa

Fjallað er um vinnu með hópa í uppeldis- og meðferðarstörfum.
Farið er í gegnum þróunarferli hópa til að efla skilning á hegðun fólks í hópi og rætt um hlutverk þjálfarans á hverju þrepi í þróuninni.
Fjallað er um samsetningu hópa, hvaða afleiðingar stærð hópsins hefur, markmiðssetningu og hvatningu til virkrar þátttöku í hópstarfinu.
Farið er yfir þær hugmyndir og kenningar sem skipulagt hópstarf byggir á, þar sem m.a. kemur fram á hvaða hátt hópurinn hefur aðrar þarfir og krefst öðru vísi aðferða en vinnan með hvern einstakling í hópnum.
Þátttakendur kynnast ýmsum verkefnum sem nota má í vinnu með hópa.

Markhópur: Starfsfólk í félags- og heilbrigðisþjónustu eða innan menntakerfisins sem vinnur með hópa eða hefur áhuga á að taka upp hópvinnu í starfi með skjólstæðinga sína.

Fræðsluaðili og staður: SÍMEY, Þórsstíg 4, Ak.
Leiðbeinandi: Kristján Már Magnússon sálfræðingur
Tími og dags: 19. okt. kl. 9 – 16.
Tímafjöldi:6 klst.
Verð kr: 10.500.-

Skr&aacute;ning...

Share on Facebook