SIMEY

Leikskólabrú

Lýsing: Leikskólabrú er metin til 38 eininga á framhaldsskólastigi. Námsgreinar eru fötlun, leikur náms og þroska, matur og næring, samskipti og samstarf, skyndihjálp, uppeldisfræði, þroski og hreyfing, félagsfræði, hegðun og atferlismótun, listir og skapandi starf, sálfræði, siðfræði, . Nám á leikskólabrú tekur fjórar annir.

Námið í BRÚ er kennt eftir námsskrá frá Fræðslumiðstöð Atvinnulífsins og gefur einingar á framhaldsskólastigi miðað við aðalnámsskrá framhaldsskóla. Það er skipulagt fyrir einstaklinga sem eru orðnir 22ja ára og hafa a.m.k. 3ja ára starfsreynslu og hafa lokið starfstengdum námskeiðum eða sí- og endurmenntun allt að 220-230 klst. og er það metið til 17 eininga af sérgreinum brautar. Um er að ræða sídegisnám sem fram fer tvö kvöld í viku. Nánari upplýsingar veita Betty eða Valgeir í síma 460-5720 einnig er hægt að senda póst á betty@simey.is eða valgeir@simey.is. Umsóknarfrestur er til 10. ágúst 2010.Þátttakendur greiða fyrir hverja önn og er verðið 22.000.- og hægt er að sækja um styrk fyrir þeirri upphæð í stéttarfélag viðkomandi.

Skráning...

Share on Facebook