SIMEY

Skrifstofuskólinn Kvöld

Lýsing: Skrifstofuskólinn er ætlaður þeim sem vinna almenn skrifstofustörf eða þeim
sem hafa hug á því að skipta um starfsvettvang.
Skrifstofuskólinn er 240 kennslustunda og er ætlaður fólki á vinnumarkaði sem er 20 ára eða eldra og
hefur stutta formlega skólagöngu að baki. Tilgangur námsleiðarinnar er að auka
sjálfstraust námsmanna til að takast á við almenn skrifstofustörf og stuðla að
jákvæðu viðhorfi þeirra til áframhaldandi náms. Í náminu er lögð áhersla á að
námsmenn læri að læra, efli sjálfstraust sitt og lífsleikni. Námsaðferðir eru aðal -
lega byggðar á hagnýtum viðfangsefnum sem auðvelt er að yfirfæra á almenn
skrifstofustörf.

Helstu námsþættir:
Sjálfsstyrking og samskipti
Námstækni
Tölvu- og upplýsingaleikni
Verslunarreikningur og bókhald
Þjónusta
Enska
Færnimappa

Verð: kr. 43.000

Skráning...

Share on Facebook