SIMEY

Landnemaskólinn

Lýsing: Tilgangur Landnemaskólans er að auðvelda fólki af erlendum uppruna aðlögun að íslenskum vinnumarkaði
og samfélagi.
Í Landnemaskólanum er megináhersla lögð á nám í íslensku en einnig á að auka þekkingu
námsmannanna á íslensku samfélagi og atvinnulífi. Leiðbeinendur tala íslensku. Ef brýn þörf
er á skýra þeir mál sitt á ensku. Leiðbeinendur leitast við að nýta þekkingu, færni og
menningu hvers einstaklings. Fréttir, dægurmál og atvik úr lífi og starfi námsmanna eiga að
njóta forgangs fram yfir hefðbundið námsefni.
Í Landnemaskólanum fer námið að miklu leyti fram með umræðum og verkefnavinnu þar
sem námsmenn afla sér upplýsinga svo sem á Netinu, í fjölmiðlum og hjá stofnunum. Nám
byggir á frammistöðu og ábyrgð einstaklings en einnig samvinnu og samábyrgð allra sem
koma við sögu þess. Námsárangur er ekki aðeins vitnisburður um frammistöðu einstaklings.
Námsárangur er einnig vitnisburður um aðstæður til náms og vitnisburður um árangur af
samvinnu námsmanna og leiðbeinenda.

Námsgreinar
Íslenska
Samfélagsfræði
Tölvur
Færnimappa
Sjálfsstyrking og samskipti


Verð: kr. 22.000,-

Námið er seinniparts/kvöldnám og fer fram á haustönn 2010 og lýkur í desember 2010.
Nánari upplýsingar er hægt að fá í síma 4605720

Information in Englis.
http://frae.is/files/%7BDC73D1C8-B518-480E-87A7-A78BA256E004%7D_Landnemask%C3%B3linn%20%C3%A1%20ensku.pdf

Information in polish:
http://frae.is/files/%7B78D1B628-68CA-4A15-9F77-3F0AC2D7AA57%7D_Landnemask%C3%B3linn%20%C3%A1%20p%C3%B3lsku3.pdf

Skráning...

Share on Facebook

Námskeið í boði

ekkert skráð...

ekkert skráð...

ekkert skráð...